Staki leitar að einstaklega færum sérfræðingum

Staki leitar að einstaklega færum sérfræðingum Staki leitar að fólki, einstaklega færum sérfræðingum á sviði hugbúnaðar og iðnstýringa. Ráðið verður í

Staki leitar að einstaklega færum sérfræðingum

Leitað er að sérfræðöingum sem hafa þekkingu og reynslu af iðnstýringum, forritun iðntölva, almennri hugbúnaðargerð, skjákerfum og verkefnastjórnun.

Við óskum eftir einstaklingum með háskólapróf í rafmagns-, tölvu- og/eða vélaverkfræði sem hafa reynslu af hússtjórnarkerfum, sterkstraumu og hugbúnaði frá Wonderware og/eða Factory Talk.

Einnig leitum við að einstaklingum með þekkingu og reynslu af almennri hugbúnaðargerð og vinnu með gagnagrunna. Viðkomandi þurfa að hafa haldgóða reynslu og þekkingu á helstu grunnum, s.s. Oracle, MS-SQL og þekkja til PL/SQL forritunar.

Umsóknarfrestur er til 20. apríl nk.

Smellið hér til að sækja um.


Staki Automation ehf - Stórhöfða 22 - 30 - 110 Reykjavík - Sími: 568 8560