
Staki er á höttunum eftir öflugu starfsfólki sem hefur áhuga á að vinna í vaxandi fyrirtæki.
Við erum að leita að fólki sem hefur áhuga á iðnstýringum, forritun og verkefnastjórnun, fólki sem hefur metnað til að leggja sig fram, vinna sjálfstætt en vera jafnframt fært um að vinna í smærri hópi.
Við bjóðum upp á sveigjanlegan vinnutíma og sanngjörn laun en hjá Staka starfar 18 manna hópur sérfræðinga á sviði iðnstýringa og almennrar hugbúnaðargerðar og við viljum styrkja þann hóp enn frekar.