Stefnur

Gæðastefna Viðskiptavinur Staka er ávallt í öndvegi og er afar mikilvægt að hann sé ánægður með þá vöru og þjónustu sem fyrirtækið veitir.

Stefnur

Gæðastefna

Viðskiptavinur Staka er ávallt í öndvegi og er afar mikilvægt að hann sé ánægður með þá vöru og þjónustu sem fyrirtækið veitir. Viðskiptavinurinn á að upplifa að kröfur hans séu uppfylltar fyrir sanngjarnt verð.

Staki leggur metnað sinn í að fylgja bestu aðferðum í öllu sem fyrirtækið tekur sér fyrir hendur. Þessar aðferðir eru stöðugt í endurskoðun með það að markmiði að gera sífellt betur og betur.

  • Staki er kraftmikið árangursdrifið fyrirtæki þar sem snerpan er í fyrirrúmi
  • Staki vandar sérstaklega til áætlunargerðar og skilgreiningar á umfangi verkefna
  • Staki leggur sig fram við að skilja viðskiptavininn, þarfir hans og væntingar til að tryggja sameiginlegan skilning og hagsmuni
  • Staki stundar ávallt fagleg vinnubrögð og skilar vönduðu verki
  • Staki nýtir öll tækifæri til að auka virði þeirrar þjónustu sem viðskiptavinurinn fær
  • Staki vinnur samkvæmt kröfum ISO 9001 gæðastjórnunarstaðalsins
  • Staki virðir gildandi lög og reglugerðir

Öryggisstefna

 Staki tryggir öryggi þeirra gagna sem fyrirtækið er með til að vernda sameiginlega hagsmuni sína og viðskiptavina sinna. Öryggisstefna Staka tryggir að gögn séu rétt og aðgengileg fyrir þá aðila sem þurfa að nota þau þegar þeir þurfa.

  • Húsnæði Staka er öruggt með virku aðgangs-, innbrota- og öryggiskerfi
  • Gögn Staka eru vistuð í öruggu og afrituðu umhverfi
  • Hjá Staka eru reglur í gildi um notkun leyniorða, umgengni um vinnustöðvar og notkun gagna
  • Starfsmenn Staka fylgja öryggisreglum viðskiptavina sem geta gengið lengra en öryggisreglur Staka
  • Staki virðir persónuvernd starfsmanna og hefur skýrar reglur um meðferð gagna ásamt notkun tölvupósts og internets
  • Staki stýrir aðgangi að umhverfi sínu og gögnum með viðurkenndum hætti í aðgangskerfum

Starfsmannastefna

Staki er spennandi og eftirsóttur vinnustaður, sem hefur á að skipa hæfu starfsfólki.  Fyrirtækið er fjölskylduvænt þar sem skemmtilegt er að vinna og starfsfólk líður vel.

  • Staki er fjölskylduvænn vinnustaður þar sem jafnvægis milli heimilis og vinnu er gætt
  • Staki tryggir eðlilega vinnuaðstöðu sem kemur í veg fyrir vinnutengda kvilla
  • Ráðningaferli Staka tryggir að fyrirtækið ræður til sín hæft starfsfólk og veitir því rétta þjálfun í upphafi starfs
  • Öflug starfsþróun hjá Staka byggir á endurmenntun og sjálfsnámi starfsmanna sem tryggir þekkingu og kemur í veg fyrir að starfsmenn staðni
  • Hjá Staka eru starfskjör í samræmi við frammistöðu og eru starfsmannaviðtöl minnst einu sinni á ári
Staki Automation ehf - Stórhöfða 22 - 30 - 110 Reykjavík - Sími: 568 8560