Staki automation er verkfræði- og hugbúnaðarhús, þjónustufyrirtæki sem skiptist í meginatriðum í þrjú svið; tækni og verkfræði, hugbúnaðargerð og ráðgjöf og rafræn viðskipti. Félagið er stofnað 2008 og er í eigu Símans.
Í fyrstu voru megin verkefnin á sviði verkfræði, iðnstýringa og hugbúnaðargerðar. Verkfræði og iðnstýringahlutinn byggði á gömlum merg eða allt frá stofnun Verkfræðiskrifstofu Hafliða Loftssonar (VHL) árið 1986 og stærstu verkefnin voru fyrir ISAL. VHL sameinaðist ANZA árið 2003 og varð þar með hluti þeirrar starfsemi. ANZA var þekkingarfyrirtæki á sviði netrekstrar, úthýsingar, öryggismála og ráðgjafar. Það var síðan sameinað Símanum 2007 og rétt fyrir mitt ár 2008 er síðan stofnað sérfélag um hugbúnaðar-, iðnstýringa- og ráðgjafarþjónustuna. Þannig er hugbúnaðar- og ráðgjafarþátturinn ættaður frá ANZA.
Nýjasta þjónusta Staka er á sviði rafrænna og pappírslausra viðskipta þar sem félagið ætlar að vera í fararbroddi. Staki aðstoðaðar fyrirtæki við rafrænar pantanir, farmskjöl, tollaskýrslur, reikninga o.fl., allt eftir þörfum hvers viðskiptavinar fyrir sig.
Meginhlutverk Staka er að veita afburða þjónustu á þeim sviðum sem félagið starfar. Þá hefur félagið sett sér það að brúa bil milli hefðbundinnar hugbúnaðargerðar og iðntölvuforritunar/stýringa en það bil er sífellt að minnka. Í því skini hafa starfsmenn Staka sótt sér þekkingu á báðum sviðum og félagið hefur því á að skipa mjög hæfu starfsfólki sem vinnur bæði við hugbúnaðargerð og iðnstýringar/forritun, auk ráðgjafa sem hafa mikla reynslu af rafrænum viðskiptum.
Auk heðfbundinna verkfræðistarfa spannar starfsemi félagsins ferla frá framleiðslugólfi til forstjóraskrifstofu, þar sem sjálfvirkni ferla, gagnasöfnun og úrvinnsla þeirra gegnir lykilhlutverki