Tækni- og verkfræði

Staki hefur yfir að ráða öflugum hópi tækni- og verkfræðinga með mikla reynslu og þekkingu á sjálfvirkni í iðnaði og hverskyns tölvustýringum. Á Tækni- og

Tækni- og verkfræði

Staki hefur yfir að ráða öflugum hópi tækni- og verkfræðinga með mikla reynslu og þekkingu á sjálfvirkni í iðnaði og hverskyns tölvustýringum. Á Tækni- og verkfræðisviði eru sérfræðingar sem sérhæfa sig í rafhönnun, iðntölvuforritun, forritun stjórnskjáa, skjákerfum ásamt tengingum og gagnaflutningum upp í æðri kerfi.

Áralöng reynsla í kerfum álvers RioTintoAlcan (RTA) í Straumsvík þar sem gerðar eru miklar kröfur til gæða og öryggis, styrkir Staka í verkefnum tengdum allskyns stóriðju og öðrum iðnaði. Dæmi um stór iðnstýringaverkefni sem Staki hefur unnið og verkefnastýrt eru forritun þurrhreinsistöðva, þéttflæðikerfa, blöndunarofna og straumstýringa kerskála. Staki hefur einnig sett upp miðlægt húsvöktunarkerfi fyrir Mílu til að vakta tækjarými sem staðsett eru um land allt og munu telja hundruð húsa áður en yfir líkur. Vegna þeirrar miklu reynslu sem Staki býr yfir á þessum sviðum býður Staki sérfræðinga sína í verkfræðiráðgjöf til viðskiptavina ásamt aðstoð við úttektir, verk- og verkefnastjórn.

Staki hefur til margra ára átt í þéttu samstarfi við RTA í Straumsvík um rekstur iðntölva og skjákerfa verksmiðjunar. Staki tekur að sér ýmis rekstrarverkefni sem falla til í daglegum rekstri, viðhald iðntölvukerfa og skjákerfa, bilanagreiningar, rafhönnun og ýmis önnur verkfræðistörf. Fjórir starfsmenn Staka hafa jafnan aðsetur á svæði verksmiðjunnar vegna þessara verka.

Staki Automation ehf - Stórhöfða 22 - 30 - 110 Reykjavík - Sími: 568 8560