Staki veitir viðskiptavinum sínum skilvirkar lausnir fyrir rafræna reikninga sem uppfylla allar strangar kröfur um gæði, áreiðanleika og öryggi. Með þekkingu sinni og færni kemur Staki til móts við mismunandi þarfir sinna viðskiptavina og hjálpar þeim að sjálfvirknivæða mikilvæga viðskiptaferla og stuðla þannig að auknu rekstrarhagræði.
Í samræmi við stefnu Staka um bestu aðferðir og lausnir nýtir Staki sér dreifingarmiðstöð Sendils.is í sínum útfærslum með rafræna reikninga. Á þann hátt leitast Staki við að veita viðskiptavinum ávallt bestu fáanlegu stöðluðu lausnir sem skila sér í skilvirkari og áreiðanlegri samskiptum til sinna viðskiptafélaga bæði hér innanlands og erlendis
Staki býður eftirfarandi þjónustu í tengslum við rafræna reikninga:
- Ráðgjöf og aðstoð við innleiðingu rafæna reikninga.
- Aðlögun kerfa og sérhæfða hugbúnaðarvinnu.
- Aðgang að dreifingamiðstöð fyrir rafræn viðskiptaskjöl.
- Aðgengi að þjónustuborði.