Rafræn við skipti - EDI

  Staki hefur umsjón með og rekur landskerfið ISHOLF sem er sérhæfð þjónusta fyrir EDI samskipti. Þjónustan hefur verið starfrækt frá upphafi EDI væðingar

EDI-Samskipti

  Staki hefur umsjón með og rekur landskerfið ISHOLF sem er sérhæfð þjónusta fyrir EDI samskipti. Þjónustan hefur verið starfrækt frá upphafi EDI væðingar á Íslandi og er ein öruggasta og traustasta leið í boði fyrir EDI samskipti.

Gagnahólf
Gagnahólf gera kleift að senda tölvugögn eins og texta, stafrænt tal, skjöl og myndrænt efni milli tölva á mjög öruggan hátt. Gagnahólf byggir á X.400 kerfi sem er alþjóðlegur staðall fyrir rafrænar skeytasendingar á milli aðila.

Á Íslandi er Gagnahólf (X.400) kerfið notað af bankastofnunum, opinberum aðilum og einkafyrirtækjum. Notkunin nær bæði til almennra samskipta sem og sérhæfðra lausna fyrir pappírslaus samskipti. Viðtakandi þarf ekki að tengjast Gagnahólfum um leið og sendandinn þar sem kerfið tekur við sendingu og geymir eftir þörfum. Ef sending kemst ekki til skila af einhverjum ástæðum lætur kerfið sendandann vita nema um annað sé beðið.

Einkakerfi
Þeir sem nota Gagnahólf mikið, eins og til dæmis stofnanir og stór fyrirtæki, geta tengt eigið tölvukerfi við það og er þá talað um Einkakerfi. Margir innan sama fyrirtækis geta notfært sér nettengdar tölvur með þessum hætti. Sendingar til notanda tölvunnar eru geymdar í gagnahólfi hans og verður hann að sækja þær þangað. Notendur Einkakerfa eru t.d. Reykjavíkurborg og Ríkistollstjóri.

Staki Automation ehf - Stórhöfða 22 - 30 - 110 Reykjavík - Sími: 568 8560