Rafræn viðskipti

Rafrænum viðskiptum er ætlað að einfalda viðskiptaferla, draga úr margskráningum og bjóða aukið aðgengi að vörum og þjónustu. Rafvæðing viðskiptaferla

Rafræn viðskipti

Rafrænum viðskiptum er ætlað að einfalda viðskiptaferla, draga úr margskráningum og bjóða aukið aðgengi að vörum og þjónustu. Rafvæðing viðskiptaferla eykur öryggi og sjálfvirkni, fækkar milliliðum og lækkar kostnað.
 
Íslensk fyrirtæki hafa verið dugleg að nýta sér kosti og möguleika rafrænna viðskipta, bæði með beintengingum og skeytamiðjum sem tengja saman fjölda birgja og kaupendur. Með tilkomu nýrra staðla og aukinnar áherslu ríkis og sveitafélaga á rafræna reikninga fá íslensk fyrirtæki en frekari hvatningu á að stunda rafræn viðskipti.

Staki býður viðtæka þjónustu á sviði rafrænna viðskipta, með sérþekkingu og reynslu af sjálfvirknivæðingu auðveldar Staki innleiðingu rafrænna viðskiptaferla. Með öflugum samstarfsaðilum mætir Staki fjölbreyttum og ströngum kröfum sinna viðskiptavina. Staki rekur og hefur umsjón með stærstu sérhæfðu skeytamiðju landsins fyrir stöðluð rafræn viðskiptaskeyti.

Staki Automation ehf - Stórhöfða 22 - 30 - 110 Reykjavík - Sími: 568 8560