Starfsmenn Staka hafa allt að þrjátíu ára reynslu af hugbúnaðargerð á flestum sviðum þróunar og með ólíkum verkfærum.
Helsti styrkur Staka liggur í fjölbreytni verkefna og áratuga langri reynslu af að leysa flókin og krefjandi verkefni á tilsettum tíma.
Meðal verkefna má nefna upplýsingakerfi ISAL, kosningakerfi sjónvarpsstöðvanna, skuldabréfakerfi Íslandsbanka, yfir þrjátíu kerfi fyrir íþrótta og leikja útsendingar, umsóknarkerfi Vinnumálastofunar, úrslitakerfi Getrauna, upplýsingakerfi hjá Landlækni, skráningarkerfi lögreglunnar, ýmis kerfi fyrir textavarp, virðisaukaskattskerfi RSK, kerfi Kvótaþings, reikningakerfi, þjónustukerfi og bókhaldskerfi auk fjölda annarra smærri kerfa.
Af algengustu forritunarmálum og þróunarverkfærum má nefna, Pascal, Delphi, C#, C, C++, Visual Basic, Visual Studio og Cobol.
Dæmi um gagnagrunnskerfi eru Oracle, MSSQLServer, MySQL, Interbase, Informix og Rdb.
Og af stýrikerfum er helst að nefna Windows, Unix, Linux, VMS og System 36.